Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Frestun á fjárframlagi ríkisins í ferðajöfnunarsjóð Í.S.Í. bitnar á grasrótinni

Þetta eru sorglegar fréttir fyrir okkur sem búum út á landi og erum að vinna að forvarnarstarfi fyrir börn og unglinga. Íþróttahreyfingin út á landi hefur alltaf þurft að hafa fyrir hlutunum og oftar en ekki þurft að ferðast til höfuðborgarsvæðisins til að taka þátt í hinum ýmsum keppnum og minni mótum. Þessi niðurskurður kemur hins vegar ekkert niður á íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu því ferðakostnaður þeirra er gegnum gangandi um 5-20% af ferðakostnaði félaga á landsbyggðinni og hafa þau þar af leiðandi ekki notið neins styrk úr þessum sjóði að ráði enda heitir hann ferðajöfnunarsjóður ÍSÍ. Ef einhver niðurskurður á að vera þá á hann alls ekki að bitna á grasrótinni, eða það sagði Þorgerður Katrín alla veganna þann 28. nóv síðastliðinn í sjónvarpsfréttum RÚV. Þessi tillaga kemur því á óvart ef eitthvað er að marka orð Íþrótta- og menntamálaráðherra Íslands. Ég skora á íslensk stjórnvöld að skoða þessa tillögu vandlega áður en þau samþykkja hana því þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Og þá er ég bara að horfa á það forvarnargildi sem íþróttir hafa.

Norski skógarkötturinn

Mér fannst Margrét Pétursdóttir áberandi best á borgarfundinum í kvöld. Djöfull lét hún "norska skógarköttinn" ,geir hilmar haarde, heyra það. Ó hvað hann átti þetta skilið. Og ekki lét hún hinn andlitsfríða, davíð oddsson, síður finna fyrir því, en hvar var sá lubbi? Ég var svo innilega sammála henni. Og sjá þennan mikla mann, geira litla, hvað hann var þungur á brún og hvað honum var ekki skemmt  að þurfa að hlusta á staðreyndir um sjálfan sig og dabba. Já mér sýnist það vera erfitt að vera sjálfstæðismaður núna. Og þess vegna vil ég að Samfylkingin og Ingibjörg Sólrún standi fastar á sinni sannfæringu að koma dabba burt frá öllum afskiptum af fókli í landinu. Ef sjálfstæðisflokkurinn getur ekki fallist á þetta þá á Samfylkinginn að slíta þessu stjórnarsamstarfi við samstarfsflokkinn. Ingibjörg þarf að vera meira sannfærandi núna á þessum dögum og hefði kannski mátt vera kraftmeiri þarna í kvöld eins og samstarfsmaður hennar, Össur Skarphéðinsson. Sá var að skemmta sér vel. Sá eini sem mér fannst standa sig vel frá sjálfstæðisflokknum var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Mér sýnist hún vera sú sem heldur sjálfstæðisflokknum á jörðinni.

Davíð Oddsson !

Það er þrennt sem ég skil ekki í þjóðfélaginu hér. Í fyrsta lagi, af hverju er ekki búið að lækka stýrivextina? Í öðru lagi, af hverju erum við ekki búin að sækja um aðild að ESB? Og í þriðja lagi af hverju gengur Davíð Oddsson laus?

 


Frábært eða hvað?

Vissulega ber að fagna því að Kínverjar ætli að fækka dauðarefsingum en hitt er annað mál að það er fáránlegt að á 21. öldinni skulu menn vera dæmdir til dauða. Það er reyndar ekki svo að maður geti sagt að það séu bara kommarnir sem drepa seka menn ó nei. Bandarísk stjórnvöld eru enn að myrða sakborninga í sumum fylkjum Bandaríkjanna og finnst það bara sjálfsagt mál. Okkur finnst þetta vera hörð refsing ef þetta er þá einhver refsing á annað borð. Mér finnst það alla veganna ekki, þetta eru bara hrein og klár morð.

Á Íslandi fá menn þriggja til fjögurra ára dóm fyrir að nauðga og misþyrma konu á hrottafenginn hátt. Menn fá líka svipaða dóma fyrir skjalafals og skattsvik. Spyrja má sig hvort er meiri glæpur?

Það er hreint út sagt með ólíkindum að dómurum þessara þjóða skuli vera veitt það vald að geta með einu hamarshöggi ákveðið hvort sakborningur skuli drepinn eður ei.


mbl.is Kínversk stjórnvöld vilja draga úr dauðarefsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

249 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.