Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Frestun á fjárframlagi ríkisins í ferðajöfnunarsjóð Í.S.Í. bitnar á grasrótinni

Þetta eru sorglegar fréttir fyrir okkur sem búum út á landi og erum að vinna að forvarnarstarfi fyrir börn og unglinga. Íþróttahreyfingin út á landi hefur alltaf þurft að hafa fyrir hlutunum og oftar en ekki þurft að ferðast til höfuðborgarsvæðisins til að taka þátt í hinum ýmsum keppnum og minni mótum. Þessi niðurskurður kemur hins vegar ekkert niður á íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu því ferðakostnaður þeirra er gegnum gangandi um 5-20% af ferðakostnaði félaga á landsbyggðinni og hafa þau þar af leiðandi ekki notið neins styrk úr þessum sjóði að ráði enda heitir hann ferðajöfnunarsjóður ÍSÍ. Ef einhver niðurskurður á að vera þá á hann alls ekki að bitna á grasrótinni, eða það sagði Þorgerður Katrín alla veganna þann 28. nóv síðastliðinn í sjónvarpsfréttum RÚV. Þessi tillaga kemur því á óvart ef eitthvað er að marka orð Íþrótta- og menntamálaráðherra Íslands. Ég skora á íslensk stjórnvöld að skoða þessa tillögu vandlega áður en þau samþykkja hana því þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar í för með sér. Og þá er ég bara að horfa á það forvarnargildi sem íþróttir hafa.

Bensínið ódýrast í Neskaupstað

Vissi það alltaf að það er gott að búa á Norðfirði, eða í Neskaupstað. En að ég búi á Neskaupsstað eins og blaðamaður DV virðist halda fram í frétt sinni, um hvar bensínið er ódýrast, er bara rangt. Við sem búum á Norðfirði búum einnig í Neskaupstað. Þarna er um kunnáttuleysi fréttamanns að ræða í stafsetningu eins og hjá svo mörgum öðrum sem eru að skrifa frétt um þann fallega og skemmtilega bæ. Í öllum bænum, blaðamenn, takið ykkur nú á í þessu. Mér finnst svo leiðinlegt að lesa svona málvillur. Framvegis muna svo allir að við segum og skrifum Í Neskaupstað og á Norðfirði.


man-utd fær hjálp frá ensku mafíunni og sjónvarpsstöðvunum.

Var að skoða hvíldina sem topplið ensku úrvalsdeildarinnar fá um jólin. Liverpool og Arsenal fá minnstu hvíldina á milli leikja frá 26. - 28. des.  eða 43 klst. man-utd fær lengstu hvíldina á milli þessara leikja  eða 77 klst (skrýtið). Chelsea fær 47 klst. Af hverju skal ekki jafnt yfir alla ganga á þessum álagstíma. Eru kannski enska knattspyrnusambandið og bresku sjónvarpsstöðvarnar að hjálpa man-utd að vera með í titilbaráttunni? Þeim veitir reyndar ekki af því, blessuðum. Því einhvern veginn verður að reyna að jafna þetta svo Liverpool og Chelsea stingi ekki liðin af.

Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

249 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband