Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Vel heppnað kvöld

Var að koma heim af vel heppnuðu styrktar- og uppbyggingarkvöldi fyrir hana Möttu. Þarna komu margir ungir listamenn fram og er óhætt að segja að við eigum marga upprennandi stjörnur hér í Neskaupstað. Þetta kvöld var tekið upp á vídeó og verður sent til Köben og vonandi geta þau notið þess sem þarna fór fram. Ég spilaði tvö lög, eitt eftir sjálfan mig sem heitir Dagur númer fimm og annað eftir konung íslenskrar tónlistarsögunnar sjálfan Bubba Morthens lagið Talað við gluggann. Mætingin var mjög góð og söfnuðust hvorki meira né minna en rúmlega 700.000 kr. Gott mál.


Styrktar- og uppbyggingarkvöld fyrir Matthildi Matthíasdóttur og fjölskyldu.

Ég verð að spila á þessu kvöldi til styrktar henni Möttu og fjölskyldu hennar. Dagskráin byrja kl. 20:00 á fimmtudagskvöldið 14. febrúar og eru haldnir í sal Nesskóla Neskaupstað.

Gangi þér vel Matta í þessu stríði, ég trúi því að þú munir standa uppi sem sigurvegari í því.


Vilhjálmur er maður sem veit hvað orðið ábyrgð merkir

Það merkir það að ef maður missir eða er hreinlega rekinn úr stóli borgarstjóra þá er maður búinn að bera ábyrgð. Sniðugt. Síðan telur hann sér trú um það að ef maður nær þessum borgarstjórastól aftur á ógeðfelldan og óheiðarlegan hátt þá er maður búinn að bera fulla ábyrgð. Svona er pólitísk skoðun sjálfstæðismanna á því að bera ábyrgð. W00t  Kemur þetta á óvart? Nei.

Þorrablótstörn

Ég afrekaði að fara á 3 blót þetta árið, reyndar sló Ingibjörg mér við því hún fór á 4. En ég er búinn að fá nóg af þorramat þetta árið, held að ég sé búinn að innbyrða svona eins og eitt gott trog af þorramat svo ekki sé nú talað um allt það áfengismagn sem fylgir svona skemmtunum. Veit ekki hvaða mælieiningu sé best að nota til að segja til um áfengismagnið.

En nú tek ég skemmtanapásu á þessu.Whistling


Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

244 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.