Leita í fréttum mbl.is

Völvan sannspá

Jú mikið rétt, völvan spáði breytingum hjá mér á þessu ári. Hún spáði því að ég myndi skipta um vinnu og það ekki bara einu sinnu heldur 2 sinnum og sú er aldeilis sannspá. Eftir helgina verð ég að öllum líkindum kominn í vinnu hjá nýjum vinnuveitendum. Ekki mun þó mikið breytast hjá mér því það er einungis  verið að selja rekstur G.Skúlasonar á Reyðarfirði og ég verð því áfram fyrst um sinn á sama vinnustaðnum bara hjá öðrum vinnuveitanda sem heitir Launafl . Síðan mun ég skipta aftur um vinnu og það mun gerast 1. maí þann merkisdag. Þá mun ég taka að mér verkefni á vegum knattspyrnudeildar Þróttar Neskaupstað og verður það mjög spennandi starf. Þetta er starf nr. 2 aftur er völvan sannspá Grin  og ekki nóg með það þetta þýðir að ég verð þá loksins atvinnumaður í fótbolta því þetta verður mitt aðalstarf. Draumarnir rætast stundum þó seint sé.

Gleðilegt ár! Stutt útgáfa af jólunum.

Gleðilegt ár öll og takk fyrir það gamla. Jólin gengu sinn vana gang hér á Starmýrinni. Jólagæsin var að venju mjög góð, var að vísu ekki skotin af undirrituðum en samt mjög góð. Ég er að spá í að gerst öfga dýraverndunarsinni því það hentar mér svo vel.

Á jóladag brunuðum við fjölskyldan norður á heimaslóðir. Þar vorum við í góðu yfirlæti mömmu og pabba og rákumst við á tvo af mínum bræðrum þar. Þar var etið og drukkið að fornum sið og fengu börnin að kynnast forn íslenskum jólasið á slóðum Jónasar Hallgrímssonar er hrútnum á stórbýli forfeðra minna var sleppt lausum í nokkrar gimbrarskjátur. Sáum við, karl faðir minn, að hrútur þessi var svo til vita náttúrulaus og gagnaðist hann gimbrunum frekar illa, enda af suðflekkóttu forystukyni.

Á Gamlársdagskvöld var svo snæddur kvöldverður hjá mínum ástkærum tengdaforeldrum ásamt því að skála fyrir nýju ári. Þar var boðið uppá rjúpur, sumar með höglum (átti engan þátt í því, ýtir enn frekar undir dýraverndunarsinnan í mér) og í eftirrétt heimlagaður ís. Eitthvað var skotið upp af flugeldum og voru allir mjög glaðir og sátti er lögðust til hvílu þessa nýársnótt.

Völvan spáir breytingum hjá mér þetta árið. Grunar að um sé að ræða útlitsbreytingu, "perustefnið" ( lesist ístran) hverfi eða eitthvað þess háttar. Annars vona ég að árið 2008 verði skemmtilegt og spennandi ár. Vona að ættingjar,vinir, félagar og óvinir, trúaðir og ótrúaðir eigi gott og farsælt ár.

Eitt svona í lokin. Mér finnst það út í hött að einhverir "Hérastubbar" þurfi að gefa ordur um það að ræsa megi varaaflstöðina þegar rafmagnið fer hér í Neskaupstað. Mér finnst að allar mikilvægar ákvarðanir eigi að taka og koma frá Neskaupstað. Við erum góðu vön. Líf austfirðinga hefur snúist um líf Norðfirðinga hingað til, Nobbarar fá þetta, Nobbarar fá hitt, Norðfirðingar kvarta og málin eru, oftar en ekki leist á kostnað annarra austfirðinga. Þetta er hægt að lesa á nokkrum bloggsíðum hjá dugmiklum austfirskum bloggurum.


Ligg heima hjá mér lasinn....

og get ekkert tekið þátt í jólaundirbúningnum. Þetta er ömurlegt.   Sick

Jólin koma, jólin koma.....

Já það sem af er desember er búið að vera mikið að gera hjá mér. Fyrir utan að mæta í skylduvinnuna er ég búinn að taka að mér verk "Sveinka" og gleðja börnin alveg óhemju. Ég og stórbóndinn á Skorrastað brugðum okkur í rauða búninginn og lékum á alls oddi. Skemmtum við okkur mjög vel við þessa iðju og er þetta eitthvað sem maður getur hugsað sér að gera einhvern tímann aftur. Um síðustu helgi skelltum við fjölskyldan okkur svo á skíði og svo var hið árlega jólabingó knattspyrnudeildar Þróttar og gekk það vonum framar. Hafa vinningar aldrei verið hvorki stærri eða fleiri og var almenn ánægja með þetta bingó hjá þeim fjölmörgum gestum sem sóttu það. Síðan er bara að setja sig í jólagírinn og fara að dratthalast til að skreyta það sem eftir á að skreyta. Hér eru allir um það bil að detta í jólaskapið eða svona hér um bil, eða þegar öll próf eru búin og fólk getur farið að slappa af.Sleeping

Hvað er femínisti? Er það kynlaus vera.

Er búinn að vera að velta þessari spurningu fyrir mér undanfarið. Ég skil stundum ekki þetta óopinbera trúfélag. Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að femínistar vildu gera allt kynlaust, það er, að flokka ekki börnin okkar eftir kyni með litum, sem sagt litlaus ókynja börn. Femínistaguðinn Kolbrún Halldórsdóttir vill ekki að nýfæddar stelpur klæðist bleiku. Það er svo sem allt í lagi en hvað er hún að skipta sér að því í hvaða lit nýfæddu strákarnir eru klæddir í. Jú, vegna þess að við eigum ekki að flokka í kyn strax við fæðingu þetta eru rökin frá femínistum, okey mér finnst þetta vera svona bla bla rök. 

Femínistar vilja ekki heldur bera titilinn ráðherra, þeir vilja fá einhvern titil sem vísar til þess að það eru konur sem eru í þessari stöðu. er allt í lagi að greina í sundur kynin. Comon, út á hvað gengur femínisti? Ekki reyna að segja mér að hann gangi út á jafnrétti kynjanna. Ó nei, annars bíð eftir því augnabliki þegar femínistar vilja að það verði til ein úrvalsdeild í knattspyrnu og liðin verði að vera skipuð konum og körlum, þá fyrst fer að vera gaman.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

219 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 423

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband