Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Þetta var Birni Bjarnasyni líkt

Lýsandi dæmi um hroka Sjálfstæðismanna, svara ekki af því það hentar þeim betur.
mbl.is Rússar bjóða varnarsamstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúbadorhátíð Íslands 2007

Þá er það nánast komið á hreint. Ég mun taka nett kast á kassagítar minn og misþyrma raddböndunum mínum á Trúbadorhátíð Íslands þetta árið. Það er hinn bráðgáfaði flokksbróðir minn sem er eigandi þessarar hátíðar, Guðmundur R sem skipuleggur þessa hátíð. Ég mun spila á Norðfirði á laugardagskvöldinu 6. október Á efnisskránni verða frumsaminn lög frá pönktímabilinu 84´- 85´Halo Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur, Sir Arnar uppá sviði með gítarinn í rifnum gallabuxum og grænum hermannabol sem stendur "fokk u" aftan áDevil

Þá er það svo nokkuð ljóst að ég mun í fyrsta sinn á ferli mínum sem tónlistarmaður troða upp í Mjóafirði og er það nú að verða minn síðasti sjéns þar sem ferill minn er nánast á enda. Þar mun ég kyrja mína söngva á samt öðrum lögum þann 7. október ásamt eiganda hátíðarinnar. Ekki nóg með það, trúlega mun ég í fyrsta skiptið á ævi minni fara keyrandi í Mjóafjörð. Ég hef nefnilega farið nokkrum sinnum á bát í fjörðinn mjóa og það mundi sennilega seint teljast einhver sjómennska að sigla frá Norðfirði yfir í Mjóafjörð en það er nú samt alveg nóg fyrir mitt sjómannshjarta.

Hvet alla sem leyfi hafa til að mæta á Trúbadorhátíð Íslands 2007 sem verður helgina 5. - 7. október.


Ábyrgð kennara er hvort eð er enginn

Ég sem var að vona að hún "Ingibjörg mín" yrði ríkur kennari á Íslandi, við verðum þá bara að snúa okkur að öðru...........æ, já var búinn að gleyma því, ábyrgðarstuðullinn hjá kennurum er víst ekki sá sami og hjá stjórnaformanni Actavis, það er víst meiri ábyrgð að leika sér með peninga en að ala upp og kenna börnum þessa lands sem kannski verða stjórnarformenn í framtíðinni, hver veit.
mbl.is Starfsaldur hefur minni áhrif á laun kennara á Íslandi en í OECD ríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært eða hvað?

Vissulega ber að fagna því að Kínverjar ætli að fækka dauðarefsingum en hitt er annað mál að það er fáránlegt að á 21. öldinni skulu menn vera dæmdir til dauða. Það er reyndar ekki svo að maður geti sagt að það séu bara kommarnir sem drepa seka menn ó nei. Bandarísk stjórnvöld eru enn að myrða sakborninga í sumum fylkjum Bandaríkjanna og finnst það bara sjálfsagt mál. Okkur finnst þetta vera hörð refsing ef þetta er þá einhver refsing á annað borð. Mér finnst það alla veganna ekki, þetta eru bara hrein og klár morð.

Á Íslandi fá menn þriggja til fjögurra ára dóm fyrir að nauðga og misþyrma konu á hrottafenginn hátt. Menn fá líka svipaða dóma fyrir skjalafals og skattsvik. Spyrja má sig hvort er meiri glæpur?

Það er hreint út sagt með ólíkindum að dómurum þessara þjóða skuli vera veitt það vald að geta með einu hamarshöggi ákveðið hvort sakborningur skuli drepinn eður ei.


mbl.is Kínversk stjórnvöld vilja draga úr dauðarefsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæli með....

að eldsneytisverð og fargjald flugleiða verði hækkað um 25-30% á tímabilinu svo við fáum að hafa rjúpnastofninn í friði hér á austfjörðum fyrir skotglöðum suðvestlendingum sem fylla hér fjöll og firnindi á hverju ári. Og engin nettilboð.    LoL


mbl.is Áfram sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskóli í Fjarðabyggð

Þetta líst mér vel á. Fá eitt stykki háskóla og það í Fjarðabyggð. Bíð eftir því að Héraðsbúar og nágrannar þeirra bölsótist út í þetta.Grin  En hér kemur fréttin sem er gripin orðrétt af svæðisfréttavef Rúv.

Fulltrúar Háskólans í Reykjavík og Fjarðabyggðar hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um eflingu menntasamfélags í sveitarfélaginu. Ákveðið hefur verið að gera könnun á þörfum og óskum, aðstæðum og tækifærum fyrir starfsmenntun, símenntun og starfsþjálfun í landshlutanum fyrir atvinnulífið og samtök þar. Efna á til samstarfs við fyrirtæki, samtök, skóla og stofnanir og aðra sem starfa að fræðslumálum. Um leið á að reyna að meta möguleika á tæknimenntun, verkmenntun og háskólamenntun á svæðinu. Samstarfsyfirlýsingin er m.a. komin til vegna vinnu starfshóps á vegum menntamálaráðuneytisins og Fjarðabyggðar sem hefur undanfarna mánuði unnið að því að kanna hvernig efla megi nám á framhaldsskólastigi í sveitarfélaginu. Verkefninu stýrir Jón Sigurðsson fyrrum formaður Framsóknarflokksins og áður rektor á Bifröst.

Alltaf skal Fjarðabyggð vera í forystu.


Einu sinni hafði ég álit á Guðjóni

En í dag þá hefur hann tapað allri þeirri virðingu sem hann var búinn að vinna sér inn sem landsliðsþjálfari og þegar hann kom Stoke upp í 1. deild. Ég held að hann sé að yfirkeyra sig af hroka og óheiðarleika í garð íslenskrar knattspyrnu sem á ekki að koma knattspyrnuþjálfun við. Spurning hvort hann þurfi ekki að koma sér í meðferð í heiðarleika og sannyndum. Mæli með að hann einbeiti sér bara að því að vera þjálfari og hætta að láta hafa eftir sér einhverja vitleysu í fjölmiðlum.


mbl.is Guðjón undrast að Bjarni sé ekki í landsliðshópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

242 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.