Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Danskar sjávarafurðir

 Komst að því að Larsen eru víst danskar sjávarafurðir. Spurning hvort Larsson séu þá ekki sænskar sjávarafurðir.


Í guðana bænum...

ekki detta í kaupsýsluliðið West Ham. Þá er metnaður þinn farinn að minnka Eiður minn. Annars treysti ég því að þú gerir það sem er þér fyrir bestu, knattspyrnulega séð. En West Ham, ó nei þá geturðu alveg eins farið í Leeds.
mbl.is Eiður Smári: Hef ekki hafnað neinum tilboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Siglufirði eða í Siglufirði.....

Það er spurningin. Hvort hljómar betur að segja á Siglufirði eða í Siglufirði ? Veit það ekki, hef ekkert spáð sérstaklega í það. En hitt veit ég og beini þeim tilmælum til alls fjölmiðlafólks að maður segir á Norðfirði og í Neskaupstað, en ekki á Neskaupstað svo ég tali nú ekki um á Neskaupsstað með alltof mörgum essum.


mbl.is 86 lið mætt á pæjumót í Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kominn heim, vildi bara láta ykkur vita.

Danmark 076Já ég er kominn heim úr fríi frá kóngsins Köpinhafn. Er tilbúinn að takast á við Neistaflug og því er allt eins og það á að vera. Það var frábært að vera í Danaveldinu, fengum bæði sól og rigningu og slatta af bitum(mug-bitum). Sumarhúsið var frábært, stórt og rúmgott. Bíllinn sem við leigðum var líka góður og notuðum við hann óspart. Norð-austur horn Jótlands var skoðað nokkuð vel en auk þess var farið í regnskógana í Randers og Legoland. Bjórinn var eins og maður bjóst við, bara nokkuð góður. Að endingu eyddum við síðustu þremur dögunum í kóngsins Köpinhafn auk þess að heimsækja einn af mínum bestu vinum Gnýr Guðmundsson en hann býr í Odense ásamt sinn fjölskyldu. Farið var í gönguferð með Gulla Ara og er það alltaf jafn gaman en við hjónakornin fórum líka í fyrra. Síðasta daginn fórum við svo í Tívoli þar sem börnin skemmtu sér vel og voru stóri rússíbaninn og fallturninn tæklaðir í spað. Stefnan er svo að fara aftur til Danmerkur á næsta ári og taka þá suður hluta Jótlands og Fjón í þeirri ferð.

 

                          hobro 050

 

 

 

 

grisefest 025

 

 

 

Danmark 066

 

 

 

 

 

 

                                                                                           


Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

242 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband