Leita í fréttum mbl.is

Stolt sjálfstæðisflokksins, tryggjum stöðugleika í efnahagslífinu.

Skora á ykkur að hlusta á þetta. Eftir að þið komið inná forsíðu þessar hræsnaraflokks þá skrollið þið niður og finnið bláan ramma sem á stendur kynningarmyndband. Þetta sannfærir mig enn meira um algjört vantraust á sjálfstæðisflokkinn.

Flott í Sviss en burt með dabba og geir, helst úr landi.

Ég skrapp til Sviss í síðustu viku til að kynna mér unglingaknattspyrnu þar í landi. Þetta var frábær ferð og skemmtilegur hópur. Við vorum 11 sem fórum frá Íslandi, 9 þjálfarar af landsbyggðinni, 1 fararstjóri og 1 túlkur. Allir fyrirlestra og kynningar fóru fram á frönsku og því var gott að hafa einn túlk með í för. Aðstaðan er þarna alveg til fyrirmyndar, hvort sem maður fór í stóru íþróttahallirnar sem meðal annars rúmuðu 4 stóra körfuboltavelli og aðstöðu fyrir stangarstökk eða hvort maður leit yfir fótboltavellina sem voru frá 3 völlum upp í 6 velli og allir voru þeir í löglegri stærð. Hreint út sagt stórkostlegt og ekki laust við það að maður óskaði sér þess að maður væri að hefja fótboltaferil og maður fengi að fara í æfingabúðir á svona stað.

En annars var ég að velta fyrir mér allri þessari vitleysu sem peningastefna Seðlabankans og sjálfstæðisflokksins er. Ég vona að Ingibjörg Sólrún fari nú að hafa kjark til þess að fara að gefa skít í Geir H og Davíð Odds. og slíta þessu samstarfi við helvítis íhaldið. Kjörorð sjálfstæðisfokksins hefur alltaf verið, halda stöðugleika í landinuog mér sýnist að þeim sé að takast það núna í fyrsta skiptið síðan sá flokkur var til. Frábært. Meira að segja Valgerður Sverrisdóttir, Framsókanarflokki  hefur komið fram í fjölmiðlum og sagt að öll þessi vandamál sem við glímum við í dag eigi upptök sín í stjórnartíð Framsóknar og sjálfstæðismanna. Hún hefur einnig talað um það að hún hafi ekki viljað fara svona geyst í einkavæðingu bankanna en engu við ráðið. geir og dabbi stjórnuðu þessu því græðgin var svo mikil og mun sennilega drepa þá. En þeir eru svo vitlausir greyin, í einni setningunni tala þeir um að þeir séu ekki að leita að sökudólgum en segja svo í þeirri næstu að sökudólgarnir séu útrásarvíkingarnir. ER hægt að treysta svona bullustömpum? Nei, og því segi ég við ykkur kjósendur, þið skuluð muna þetta þegar kemur að því að kjósa til Alþingis næst. Vonandi verður það sem fyrst og þá getum við sótt um aðild að Evrópusambandinu og tekið upp Evruna árið 2010.  Út með sjálfstæðisflokkinn og sendum davíð í útlegð og setjum á hann landvistarbann.


Davíð Oddsson !

Það er þrennt sem ég skil ekki í þjóðfélaginu hér. Í fyrsta lagi, af hverju er ekki búið að lækka stýrivextina? Í öðru lagi, af hverju erum við ekki búin að sækja um aðild að ESB? Og í þriðja lagi af hverju gengur Davíð Oddsson laus?

 


Ótrúlega áhugalausir netmiðlar

Ég er búinn að skrolla stóru fótboltasíðurnar í dag og finn ekki eina frétt um leiki helgarinnar í Lengjubikar kvenna. Bæði fótbolti.net og gras.is sjá ekki ástæðu til að minnast á leikina hjá konunum en eru tilbúnir að segja frá því að þjálfari Keflavíkur sem er með lið sitt í Tyrklandi þurfi að kenna strákunum sínum sem eru á skólabekk á meðan þeir dveljast þarna í Tyrklandi, hverjum er ekki sama. Þessir netmiðlar eru ekki að standa sig útfrá jafnréttissjónarmiði. Mér finnst þetta sýna hroka hjá þessum netmiðlum gagnvart íslenskri kvennaknattspyrnu. Kannski er þetta bara hroki í mér.Errm


Það hefur ekkert breyst hjá mér.

Bandarísk stjórnvöld eru enn að myrða saklausa borgara og eru því í sama flokki og kínversk stjórnvöld með sína aftöku stefnu og aðrir hryðjuverkamenn. Hvað er það sem réttlætir bandarísk hryðjuverk?Woundering
mbl.is Viðhorf til Bandaríkjanna jákvæðara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Sir Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Lífið er fótbolti......

Tónlistarspilari

Sir Arnar - Árið langa söngur Júlíus Guðmundsson

242 dagar til jóla

Áhugaverðir bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.